Borgarnes Bed & Breakfast er gistiheimili frábærlega staðsett við sjávarsíðuna í miðbæ Borgarnes. Borgarnes er fallegur bær í klukkustunda fjarlægð frá Reykjavík. Gistiheimilið hefur upp á að bjóða fjögur tveggja manna rúmgóð, hrein og björt herbergi með sjónvarpi, uppábúnum rúmum, ókeypis aðgang að þráðlausu neti, tveimur sameiginlegum baðherbergjum með sturtu og morgunmat. Borgarnes B&B er staðsett í einnar mínútu göngufæri frá stöndinni í Englendingavík. Englendingavík í Borgarnesi er mikilvægur hluti af verslunarsögu Borgarness, en þar eru nokkur af elstu húsum bæjarins. Jafn stutt frá er Bjössa róló sem er einn skemmtilegasti róluvöllur landsins, smíðaður af hugsjónamanninum Birni Guðmundssyni. Hann samanstendur af leiktækjum sem eru í góðu jafnvægi við náttúruna og sjóinn. Borgarnes B&B er besti kosturinn fyrir þá sem vilja búa í rólegu umhverfi í örstuttu göngufæri frá sænum, en vilja líka hafa möguleika á að skella sér á kaffihús og safn í aðeins 5mínútna göngufæri.
|